ID: 12281
Fæðingarár : 1857
Dánarár : 1943
Sigurður Finnbogason fæddist 17. júní, 1856 í N. Múlasýslu. Dáinn í Langruth í Manitoba 1. febrúar, 1943.
Maki: Elín Þóra Sigurðardóttir f. 4. júní, 1869, d. í Langruth, Manitoba 18. apríl, 1959.
Börn: 1. Jón f. í Vopnafirði 5. desember, 1892 2. Ingibjörg Arnþrúður f. í Kanada 22. janúar, 1895 3. Þórarinn f. á Brú í Argylebyggð í Manitoba 22. ágúst, 1897.
Sigurður og Elín fluttu vestur til Manitoba með Jón litla ársgamlan árið 1893. Samferða þeim vestur var Ingibjörg Jónsdóttir, móðir Elínar. Þau bjuggu fyrst á Brú í Argylebyggð, síðan í Winnipeg og svo Sinclair í Manitoba áður en þau settust að í Langruth árið 1911. Sigurður vann landbúnaðarstörf og smíðar en síðast járnbrautarvinnu í ein 30 ár.
