Sigurður Friðriksson

ID: 19419
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1888
Fæðingarstaður : N. Dakota

Sigurður Friðriksson fæddist 3. febrúar, 1888 í Milton í N. Dakota. Skráður Sigurður F. Bjarnason í Kanada.

Maki: 1913 Þóra Hansdóttir f. í Mountain, N. Dakota.

Börn: 1. Valdimar 2. Mildfríður.

Sigurður var sonur Friðriks Bjarnasonar og Mildfríðar Árnadóttur sem vestur fóru 1874 til Ontario í Kanada. Settust að í Nýja Íslandi árið 1875 og fluttu þaðan 1881 til N. Dakota.  Seinna, 1906, námu þau land í Vatnabyggð í Saskatchewan sem var í Wynyard byggð. Sigurður var aldrei bóndi, hann flutti 1906 í Wynyard og rak vélaverkstæði þar í bæ. Þóra var dóttir Hans K.  Sigurbjörnssonar.