Sigurður Guðbrandsson

ID: 4447
Fæðingarár : 1867
Fæðingarstaður : Barðastrandarsýsla

Sigurður Guðbrandsson fæddist í Múlasveit í Barðastrandarsýslu árið 1867.

Maki: Guðný Þorbjörg Guðjónsdóttir f. í S. Múlasýslu 28. ágúst, 1873, d. 24. maí, 1953. Yfirleitt skráð Þorbjörg vestra.

Börn: 1. Guðný Jónína 2. Helga Guðrún 3. Gunnlaugur Björgvin 4. Guðbrandur Kristinn d. 1934.

Sigurður flutti vestur til Winnipeg í Manitoba með foreldrum sínum og systkinum árið 1892. Guðný Þorbjörg fór vestur þangað með sínum foreldrum árið 1887. Þeir settust að í Cypress River byggðinni. Sigurður og Guðný bjuggu um skeið í Vallarbyggð í Saskatchewan en fluttu þaðan til Baldur í Manitoba.