ID: 9727
Fæðingarár : 1879
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla

Karl, Sveinbjörg, Sigurður, Lára og Hafsteinn Mynd RbQ
Sigurður Guðnason fæddist í S. Þingeyjarsýslu árið 1879.
Maki: 1915 Sveinbjörg Sveinsdóttir f. árið 1889 í Efriey í V. Skaftafellssýslu.
Börn: 1. Lára (Laura) f. 1919 2. Hafsteinn f. 1921 3. Karl (Carl) f. 1923. Fyrsta barn þeirra, Hafsteinn d. árið 1918.
Sigurður fór vestur með foreldrum sínum og systkinum til Winnipeg í Manitoba árið 1893. Ólst upp í Argylebyggð og nam land í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1906. Bjó í Kandahar/Dafoe byggð. Sveinbjörg var dóttir Sveins Ingimundssonar og Karítasar Þorsteinsdóttur í V. Skaftafellssýslu. Bróðir hennar var Jóhannes Kjarval, listmálari.
