ID: 13069
Fæðingarár : 1838
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1896
Sigurður Jónsson fæddist árið 1838 í N. Múlasýslu. Dáinn í N. Dakota árið 1896.
Maki: Pálína Sveinsdóttir f. árið 1851 í N. Múlasýslu.
Börn: 1. Þorsteinn f. 1. apríl, 1874, dó ungur 2. Sveinbjörg f. 15. maí, 1876, dó ung 3. Jóhann Þorsteinn f. 26. september, 1880 í Pembina, dó ungur 4. Guðrún f. 1881(?), dó ung 5. Sveinn Sigurjón f. 3. nóvember, 1885 í Pembina 6. Vilhjálmur 1890 í Pembina.
Þau fóru vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876 og settust að í Mikley í Nýja Íslandi. Þar hét Borðeyri. Fluttu þaðan á land í Pembinabyggð í N. Dakota árið 1879.
