Sigurður Jósefsson

ID: 11855
Fæðingarár : 1850
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1916

Sigurður Jósefsson fæddist í N. Múlasýslu 19. febrúar, 1850. Dáinn í Watertown í S. Dakota árið 1916. Sever Josefsson vestra.

Maki: Christina f. 1861 á Íslandi

Börn: 1. Róbert f. 4. febrúar, 1885.

Sigurður Jósefsson flutti vestur til Minnesota árið 1879 með Jóni Jónssyni í Hofi í Vopnafirði. Upplýsingar vantar um konu hans. Getgátur í heimildum vestra segja hana fædda í apríl, 1861 og setja síðan annað nafn (Rosa Peterson ?). Þá er þess getið að einhver Anna Peterson f. í apríl, 1879 á Íslandi hafi búið hjá þeim árið 1900 í S. Dakota. Sigurður bjó hjá Jóni og sonum hans í Nordland hreppi í Lyon sýslu árin 1880 og 1885.