Sigurður Magnússon

ID: 9235
Fæðingarár : 1867
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1940

Sigurður J Magnússon Mynd VÍÆ IV

Rósa Jóhannesdóttir Mynd VÍÆ IV

Sigurður Júlíus Magnússon fæddist í S. Þingeyjarsýslu 27. janúar, 1867. Dáinn á Mountain í N. Dakota 14. apríl, 1940.

Maki: 17. nóvember, 1894 Rósa Jóhannesdóttir f. 28. desember, 1872 í N. Þingeyjarsýslu, d. 1. júní, 1953 á Mountain.

Börn: 1. Matthildur Emilía f. 10. mars, 1896 2. Helga Sigríður f. 8. nóvember, 1897 3. Magnús Sigurður f. 25. desember, 1898 4. Elín f. 20. júní, 1900 5. Þórey f. 1. desember, 1902 6. Hannes Sigurður f. 23. mars, 1904, d. 5. febrúar, 1992 7. Hallfríður (Freda) f. 29. október, 1906 8. Kristbjörg Esther f. 1908 9. Kristján S f. 13. janúar, 1909 10. Oktavia Lára f. 7. október, 1917.

Sigurður fór vestur árið 1876 með móður sinni, Elínu Magnúsdóttur og systkinum. Þau settust fyrst að í Nýja Íslandi en þaðan fór Sigurður árið 1881 og nam land í Garðarbyggð. Flutti þaðan í nýtt hús á Mountain og hélt áfram búskap. Rósa flutti vestur til N.Dakota árið 1883 með foreldrum sínum, Jóhannesi Torfasyni og Helgu Daníelsdóttur. Þau settust að á Mountain í N. Dakota.