Sigurður Pétursson

ID: 4363
Fæðingarár : 1833
Fæðingarstaður : Dalasýsla
Dánarár : 1912

Sigurður Pétursson fæddist 7. mars, 1833 í Dalasýslu. Dáinn í Thingvallabyggð í N. Dakota árið 1912.

Maki: Magndís Magnúsdóttir f. 21. október, 1821, d. í N. Dakota árið 1889.

Barnlaus en Magndís átti Jón f. 1843 með fyrri manni, Jóni Þórðarsyni. Þau fluttu vestur til Kanada árið 1883 og settust að í Thingvallabyggð, nærri Mountain í N. Dakota.