
Sigurður Sigurðsson Mynd IPC
Sigurður Sigurðsson: Fæddur á Espihóli í Eyjafjarðarsýslu 26. nóvember, árið 1841. Dáinn 3. mars, 1926 í Blaine í Washington.
Maki: Þóra Sigurðardóttir f. í Fnjóskadal í Eyjafjarðarsýslu árið 1843. Dáin 3. desember 1931 í Blaine, Washington.
Börn: 1. Haraldur f. 1875. Dáinn 1904 2. Sigríður f. 1876 3. Tryggvi f. 1878 4. Indriði f. 1879 5. Þóra f. 21. janúar, 1881, d. 24. apríl, 1881 6. Helga f. 22. nóvember,1882 7. Jón f. í Fljótsbyggð 29. nóvember, 1884 8. Sigurbjörg (Sibba) f. 25. nóvember, 1885 í Fljótsbyggð, þríburi 9. Nikólína (Lena) f. 25. nóvember, 1885, þríburi 10. Emma f. í Fljótsbyggð 25. nóvember, 1885 dó fárra mánaða, þríburi 11. Óskar f. 6. september, 1887.
Fóru vestur um haf árið 1883 og dvöldu fyrst um sinn í Winnipeg. Fluttu að Möðruvöllum við Íslendingafljót og voru þar í þrjú ár. Þaðan lá leiðin í Hólabyggð. Fóru til Blaine í Washingtonríki árið 1902 og bjuggu þar síðan.
