Sigurður Þorsteinsson

ID: 11861
Fæðingarár : 1897
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Sigurður Þorsteinsson fæddist 5. febrúar, 1897 í Vopnafirði í N. Múlasýslu.

Maki: Guðrún Þorsteinsdóttir f. í S. Múlasýslu árið 1913.

Börn: Þau áttu sex börn, upplýsingar um þau vantar.

Sigurður fór vestur árið 1902 með foreldrum sínum, Þorsteini Þorsteinssyni og Vilborgu Jónsdóttur. Þau fóru til Manitoba, þaðan í Vatnabyggð í Saskatchewan og loks á Red Deer Point í Manitoba árið 1915.  Guðrún fór vestur ársgömul með foreldrum sínum, Þorsteini Vigfússyni og Kristínu Jónsdóttur. Þau fóru í Argylebyggð í Manitoba.  Sigurður var eftirlitsmaður Kanadastjórnar um fiskveiðar í Norður Manitoba.