Sigurgeir Stefánsson

ID: 8848
Fæðingarár : 1850
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1927

Sigurgeir Stefánsson Mynd VÍÆ IV

Sigurgeir Stefánsson fæddist í Eyjafjarðarsýslu 28. júlí, 1950. Dáinn í Selkirk, Manitoba 27. apríl, 1927.

Maki: 7. júlí, 1874 Sesselja Friðfinnsdóttir f. 30. júní, 1851 í S. Þingeyjarsýslu.

Börn: 1. Þóra Kristín f. 23. febrúar, 1876, d. 3. nóvember 1876 2. Iðunn f. 3. júlí, 1879, d. 27. febrúar, 1882 3. Ragnar f. 1. september, 1881, d. sama ár. 4. Nora Emily f. 31. október, 1884 í Winnipeg 5. Sigurgeir eignaðist son fyrir hjónaband.  Gestur f. 29. ágúst, 1873. Móðir hans hét Guðrún Jónsdóttir  frá S. Þingeyjarsýslu.

Þau fluttu vestur árið 1882 með Ragnar litla tæplega ársgamlan. Hann dó áður en þau komust á leiðarenda í Manitoba. Þar settust þau að í Selkirk og bjuggu þar í tvö ár. Þaðan lá leið þeirra til Winnipeg, dvöldu þar einhver ár en fluttu svo aftur til Selkirk. Þar bjuggu þau síðan og vann Sigurgeir við trésmíði.