Sigurrín Vigfússon fæddist 4. október, 1857 í N. Múlasýslu. Dáinn 6. ágúst, 1940. Sigurin Josephson í Minnesota.
Maki: Rósa Pálsdóttir f. 1860 í N. Múlasýslu, d. 6. október, 1940.
Börn: 1. Frank Sigurin f. 1883 2. Sigurin Lilliendal f. 16. febrúar, 1885 3. Sigfinnur f. 22. desember, 1886 4. Hermann Sigurin f. 16. febrúar, 1889 5. Pétur f. 3. apríl, 1890 6. Kristín (Christine) Rósa Josefson f. 1892. 7. Herbert Newton f. 7. desember, 1894 8. Bertha f. 1897 9. George William f. 22. febrúar, 1899 10. Joseph S. R. f. 27. október, 1901.
Sigurrín fór vestur með foreldrum sínum, Vigfúsi Jósefssyni og konu hans Sigurborgu Hjálmarsdóttur árið 1878. Þau fóru í Lincolnbyggð í Minnesota þar sem Sigurrín bjó lengstum. Rósa var af hinni kunnu Hákonarstaðaætt, dóttir Páls Péturssonar. Hún fór vestur til Minnesota árið 1878 með móður sinni, Sigríði Vigfúsdóttur.
