Sigurjón Jónsson

ID: 9165
Fæðingarár : 1853
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1938

Sigurjón Jónsson fæddist í S. Þingeyjarsýslu 5. desember, 1853. Dáinn í Saskatchewan 1. október, 1938. Srifaður Axdal vestra.

Maki: Guðrún Aðalbjörg Jóhannesdóttir f. 13. apríl, 1857, d. 1938.

Börn: 1. Hallgrímur f. 1882 2. Jón Hallgeir f. 1887 3. Sigurgeir f. 1889 4. Þórður f. 1889

Fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1890. Fluttu þaðan til N. Dakota og bjuggu þar til ársins 1907 en þá fluttu þau á sitt land í Vatnabyggð í Saskatchewan.