Sigurjón Jónsson

ID: 10297
Fæðingarár : 1864
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1925

Sigurjón Jónsson Mynd FAtV

Guðrún Þorvaldsdóttir og ónafngreind dóttir Mynd FAtV

Sigurjón Jónsson fæddist 12. ágúst, 1864 í S. Þingeyjarsýslu. Dáinn í Nýja Íslandi 29. september, 1925.

Maki: 1896 Guðrún Þorvaldsdóttir f. í Skagafjarðarsýslu 26. febrúar, 1877, d. 25. júní, 1955.

Börn: 1. Þorvaldur f. 23. október, 1897 2. Þuríður 3. Þorvaldur Bergsveinn 4. Jón Marínó 5. Ólafur 6. Albert Björgvin 7. Petrína Sigurrós 8. Margrét Kristjana 9. Júlíana Ingibjörg.

Sigurjón fór vestur til Winnipeg í Manitoba ásamt bróður sínum, Árna, árið 1887.  Sigurjón nam land í Árnesbyggð. Guðrún fór sama ár vestur þangað með foreldrum sínum, Þorvaldi Þorvaldssyni og Þuríði Þorbergsdóttur.