ID: 9491
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1920
Sigurjón Kristófersson fæddist í S. Þingeyjarsýslu. Dáinn í Manitoba 18. október, 1920. Christopherson vestra.
Maki: Helga Jórunn Jónsdóttir f. 26. júlí, 1855, d. 19. október, 1934.
Börn: 1. Sigurður f. árið 1876 2. Þorgerður Ólöf f. árið 1882.
Sigurjón fór vestur með fjölskyldu sína árið 1893 og fór í Argylebyggð. Stundaði landbúnað en bjó síðustu árin í Baldur. Samferða honum var móðir systkinanna frá Ytri Neslöndum, Sigurveig Sigurðardóttir nærri áttræð.
