Sigurjón Sigmarsson

ID: 9646
Fæðingarár : 1879
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla

Sigurjón Sigmarsson

Sigurjón Sigmarsson fæddist árið 1879 í S. Þingeyjarsýslu. Eftirnafnið Sigmar vestra. Dáinn í Vancouver 7. maí, 1957.

Maki:4. nóvember, 1915 Louise Guðrún Jacobson f. 28. september, 1897 í Chicago.

Sigurjón fór vestur til Winnipeg í Manitoba með foreldrum sínum og systkinum árið 1883. Þau settust að í Argylebyggðinni og þar ólst Sigurjón upp. Átti og rak verslanir í Glenboro í félagi við Kristján bróður sinn sem þeir nefndu Sigmar Bros & Co. Frændi þeirra, Kristján Jónsson frá Bárðardal tók þátt í rekstri þeirra um skeið. Árið 1919 seldu þeir bræður og fluttu til Winnipeg. Lovísa var dóttir  Jóhanns S Jacobson læknis frá Eskifirði og Sylviu Louise Nielsen frá Eyrarbakka. Sigurjón og Louise fluttu frá Winnipeg til Vancouver árið 1948.