Sigurjón Sveinsson

ID: 9583
Fæðingarár : 1854
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla

Sigurjón Sveinsson Myndir SÍND

Valgerður Sylvía Þorláksdóttir

Sigurjón Sveinsson fæddist í S. Þingeyjarsýslu 20. nóvember, 1854. Dáinn í Wynyard, Saskatchewan 15. maí, 1939.

Maki: 1881 Valgerður Sylvía Þorláksdóttir f. 1863 í S. Þingeyjarsýslu. Dáin 6. maí 1909 í Vatnabyggð.

Börn: 1. Henrietta f. 1884 2. Páll f. 1886 3. Lilja f. 1889 4. Clara f. 1892 5. Soffía f. 1894 6. Lovísa f. 1897 7. Aldís f. 1900.

Sigurjón fór vestur til Milwaukee í Wisconsin árið 1873. Dvaldi á ýmsum stöðum þar um slóðir og í Michigan. Flutti í Ljósavatnssýslu haustið 1877 og tók þátt í nýlendustofnun í N. Dakota sumarið 1878.  Nam land í Garðarbyggð og bjó þar til ársins 1905 en þá flutti hann í Vatnabyggð í Saskatchewan. Hann nam land vestur af Wynyard og bjó þar til ársins 1910 en flutti þá í Wynyard þorpið með ógift börn sín. Þar rak hann kjötverslun til ársins 1918 en seldi og dvaldi eftir það hjá börnum sínum í þorpinu.

Íslensk arfleifð :