ID: 11309
Fæðingarár : 1888
Fæðingarstaður : Ísafjarðarsýsla
Dánarár : 1943
Sigurlína Pétursdóttir fæddist 20. september, 1888 í Ísafjarðarsýslu. Dáin í San Diego 31. október, 1943. Lena Peterson vestra
Maki: Bandarískur, John Stewart.
Börn: Upplýsingar vantar.
Sigurlína fór vestur til Winnipeg árið 1891 með móður sinni, Kristínu Sigurðardóttur og ömmu sinni, Húnbjörgu Guðmundsdóttur. Faðir hennar, Pétur Bjarnason fór vestur þangað ári síðar. Sigurlína var tekin í fóstur af Helgu Jónsdóttur frá Selskerjum og ólst hún upp í Lundarbyggð.
