Sigurrósa Sigurbjörnsdóttir

ID: 10338
Fæðingarár : 1878
Fæðingarstaður : N.Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1956

Sigurrósa Sigurbjörnsdóttir fæddist í Skinnastaðahreppi í N. Þingeyjarsýslu 1878.

Maki: Arnljótur Ólafsson fæddist að Tyrfingsstöðum í Skagafjarðarsýslu 12. júlí, 1879, d. 7. október, 1937 í N. Dakota.

Börn: 1. Björg f. 27. febrúar, 1903 2. Anna f. 9. júlí, 1906 3. Lilja (Lily) f. 17. febrúar, 1910 4. Sigurbjörn f. 5. júní, 1917.

Sigurrósa fór vestur til N. Dakota með sínum foreldrum, Sigurbirni Guðmundssyni og Önnu Guðnadóttur árið 1879. Arnljótur fór vestur til Winnipeg í Manitoba með móður sinni, ekkjunni Björgu Ólafsdóttur árið 1883. Arnljótur og Sigurrósa fluttu til Winnipegosis um aldamótin frá N. Dakota og voru nokkur ár en sneru þá til baka til N. Dakota.