Sigurveig Sigurðardóttir fæddist í Vopnafirði í N. Múlasýslu 9. ágúst, 1843. Dáin 6. maí, 1926 í Argylebyggð, Manitoba. Oleson vestra.
Maki: Eyjólfur Jónsson fæddist í S. Múlasýslu árið 1833. Dáinn 15. janúar, 1898 í Manitoba. Oleson vestra.
Börn: 1. Guðrún Stefanía f. 1880 2. Guðni Júlíus (G. J. Oleson) f. 1882 3. Kristján Aðaljón (C. A. Oleson) f. 1884 4. Halldór Tryggvi f. 1887, d. 7. júní, 1911. Eyjólfur átti börn með fyrri eiginkonu sinni, Guðrúnu Guðmundsdóttur: 1. Guðmundur Oleson f. 1866 2. Guðbjörg f. 1869, d. 21. janúar, 1908 3. Svanhvít f. 1873, d. 1894.
Eyjólfur og Sigurveig fóru vestur með börn hans þrjú til Winnipeg í Manitoba árið 1878 og rakleitt til Nýja Íslands. Þar nam Eyjólfur Fagraland í Víðinesbyggð þar sem hann bjó til ársins 1892. Flutti þaðan í Argylebyggð og bjó tvö ár nærri Belmont. Flutti norður í Hólabyggðina árið 1894 og bjó þar sín síðustu ár.
