
Skúli Sigfússon og Guðrún Guðmundsdóttir Mynd WtW
Skúli Sigfússon fæddist 1. október, 1870 í S. Múlasýslu. Dáinn í Lundarbyggð árið 1969.
Maki: 22. júní, 1908 Guðrún Guðmundsdóttir f. í Reykjavík 5. júní, 1889. Arnason vestra áður en hún giftist.
Börn: 1. Arthur f. 14. maí, 1909 2. María f. 18. ágúst, 1910 3. Sveinn f. 15. júlí, 1912 4. Skúli Albert f. 16. júní, 1915 5. Sigurður Jón f. 17. júlí, 1916 6. Ólöf f. 15. maí, 1919 7. Thomas f. 22. mars, 1928.
Skúli flutti vestur til Winnipeg í Manitoba með foreldrum sínum og systur árið 1887. Jón, bróðir hans, tók á móti þeim í bænum og fór með þau á bæ sinn í Lundarbyggð. Þar bjó Skúli alla tíð. Guðrún var dóttir Guðmundar Bjarnasonar frá Efstadal í Laugardal og Margrétar Jónsdóttur ættuð úr Húnavatnssýslu. Hún giftist seinna Arnóri Árnasyni sem vestur fór árið 1887 og bjó í Chicago. Guðrún bar eftir það föðurnafn hans vestra. Skúli vann hin ýmsu verk fyrstu árin sín í Lundarbyggð, mest hjá Jóni bróður sínum. Hann nam land árið 1896 suðvestur af Lundar með móður sinni.
