Skúlína Guðmundsdóttir

ID: 5590
Fæðingarár : 1853
Dánarár : 1941

Skúlína Rósamunda Guðmundsdóttir fæddist 21. maí, 1853 í S. Þingeyjarsýslu. Dáin í Grafton í N. Dakota 1. janúar, 1941.

Maki: 1886 Snorri Sigurðsson fæddist í Húnavatnssýslu 11. júní, 1863. Dáinn 1915 í N. Dakota. Sivertson vestra.

Börn: 1. Ingibjörg f. 1888 2. Sigrún 3. Fanny 4. Marsellína Sigríður 5. Einara Rósamunda 6. Guðmundur Valdimar

Snorri og Skúlína fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1888. Þau bjuggu eitt ár í Garðar í N. Dakota en þaðan lá leið þeirra til Grafton þar sem þau bjuggu alla tíð.