ID: 9401
Fæðingarár : 1875
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1967
Snæbjörn Andrésson fæddist 8. maí, 1875 í S. Þingeyjarsýslu. Dáinn í Manitoba 12. júlí, 1967. Anderson vestra.
Maki: Kristín Jakobsdóttir f. 1. apríl, 1883, d. 1945.
Börn: 1. Kristjana Vigdís (Dísa) 2. Friðrik (Fred).
Snæbjörn fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1887 með foreldrum sínum, Andrési Andréssyni og Vigdísi Friðriksdóttur og bræðrum. Hann bjó hjá þeim í Argylebyggð, stundaði verslunarstörf og rak ásamt með öðrum verslanir í Glenboro. Kristín fór vestur með foreldrum sínum, Jakobi Helgasyni og Kristjönu Helgadóttur árið 1884 og bjuggu þeir í Argylebyggðinni.
