Snjólaug Jóhannesdóttir fæddist 19. apríl, 1848 í Eyjafjarðarsýslu. Dáin í Nýja Íslandi 2. nóvember, 1939.
Maki: 1) Þorlákur Arngrímsson d. í Dýrafirði árið 1871 2) 26. mars, 1879, (Séra Páll Þorláksson gaf þau saman í Árnesbyggð) Sigurður Sigurbjörnsson f. í N. Þingeyjarsýslu 18. október, 1852, d. 13. desember, 1925.
Börn: Með Þorláki 1. Snjólaug Soffía, fór ekki vestur 2. Magnús Tryggvi f. 1871. Með Sigurði: 1. Sigurjón f. 22. maí, 1878 í Árnesi í Nýja Íslandi 2. Friðrika d. í æsku 3. Friðrika f. 1883 4. Friðgeir f. 31. júlí, 1886 5. Sigurbjörn f. 6. október, 1892.
Snjólaug fór vestur til Nýja Íslands árið 1876 með Magnús Tryggva, samferða Magnúsi bróður sínum og konu hans, Kristjönu Jónsdóttur. Þau settust að í Árnesbyggð. Snjólaug og Sigurður bjuggu í sömu byggð.
