Snjólaug Jónsdóttir

ID: 13580
Fæðingarár : 1827
Fæðingarstaður : S. Múlasýsla
Dánarár : 1914

Snjólaug Jónsdóttir fæddist árið 1827 í S. Múlasýslu. Dáin í Watertown í S. Dakota árið 1914.

Maki 1) Guðmundur Þórðarson d. á Íslandi 2) Jón Einarsson f. 1839 í N. Múlasýslu.

Börn: Með Guðmundi 1. Vilhelmína f. 12. júlí, 1852 2. Jón f. 5. nóvember, 1853. Með Jóni 1. Kristján f. 19. september, 1862 2. Vigfús 3. Guðrún Þuríður f. 11. mars, 1864 4. Jón f. 9. maí, 1866, d. 2. júní, 1899 5. Sigríður f. 25. maí, 1867 6. Jón f. 22. nóvember, 1871.

Snjólaug og Jón fluttu vestur um haf árið 1888 og fór Jón, yngsta barn þeirra með þeim. Þau fóru til Minneota og bjuggu þar árið 1900. Snjólaug flutti árið 1908 til Guðrúnar dóttur sinnar sem bjó í Watertown í S. Dakota.