Soffía Jósafatsdóttir

ID: 5499
Fæðingarár : 1831
Fæðingarstaður : Húnavatnssýsla
Dánarár : 1902

Soffía Jósafatsdóttir fæddist 9. september, 1831 í Húnavatnssýslu. Dáin 23. október, 1902 í Winnipeg.

Maki: 13. maí, 1849 Baldvin Helgason f. í S. Þingeyjarsýslu 15. september, 1826. Dáinn 24. febrúar, 1905 í Warrenton í Oregon.

Börn: 1. Ásgeir Vídalín f. 9. desember, 1851 2. Friðrika Soffía f. 1. janúar 1853 3. Helga Steinvör f. 1854, d. 1857 4.  Jósefína  Hólmfríður  f. 31. október, 1857 5. Helga Steinvör f. 3. desember, 1858 (skáldkonan Undína) 6. Oddný Júlíana f. 1. júlí, 1860, d. 1864 7. Jósafat Helgi f. 18. október, 1861, d. 1864 8. Andvana dóttir f. 1864  9. Jósafat Helgi f. 5. júlí, 1866 10. Baldvin Tryggvi f. 2. desember, 1868. 11.Óli Pétur f.8. september 1873 í Ontario. Dó í æsku.

Þau fluttu vestur til Ontario í Kanada árið 1873. Hann var einn stofnenda íslensku byggðarinnar í Rosseau í Ontario og bjó þar til ársins 1881. Flutti þá vestur í Pembinabyggð í N. Dakota og nam svo land í Garðarbyggð. Bjó nokkuð í Mountain en þaðan lá leiðin í Selkirk í Manitoba.