ID: 4868
Fæðingarár : 1859
Fæðingarstaður : Ísafjarðarsýsla
Dánarár : 1921
Solveig Kristjánsdóttir fæddist árið 1859 í Ísafjarðarsýslu. Dáin 5. febrúar, 1921 í Vancouver í Bresku Kólumbíu.
Maki: 11. nóvember, 1880 Sigurður Jóhannsson f. 24. ágúst, 1850 í Dalasýslu, d. í Vancouver í Kanada 18. desember, 1933.
Börn: Þau eignuðust átta börn, þrjú dóu á Íslandi en fimm í Kanada. 1. Sigurveig f. 1880 2. Ingibjörg f. 1884 3. Jóhann f. 1886 4. Solveig f. 1889. Fóru vestur með foreldrum sínum, upplýsingar vantar um 5. barnið sem vestur fór.
Þau fluttu vestur frá Reykjavík árið 1892 og foru til Winnipeg. Þar voru þau einhvern tíma áður en þau settust að í Keewatin í Ontario þar sem þau bjuggu í 12 ár. Þaðan lá leiðin vestur að Kyrrahafi, voru fyrst á Point Roberts skaganum í Washington en fóru þaðan til Vancouver.
