Solveig Þorsteinsdóttir fæddist í Reykjavík 9. september, 1886.
Maki: 16. febrúar,1905 Einar Jónsson f. í Rangárvallasýslu 31. mars, 1882, d. í Manitoba 5. október, 1959. Johnson vestra.
Börn: 1. Sigríður f. fædd 2. júní, 1906 á Íslandi 2. Ólafía Helga f. 23. maí, 1919 í Manitoba 3. Pálína Valgerður f. 17. júní, 1924.
Þau fluttu vestur til Manitoba árið 1912. Einar hafði stundað fiskveiðar og verslunarstörf á Íslandi og hneigðist því hugur hans vestra að því sama. Hann kannaði málin í Winnipeg, skoðaði aðstæður í Poplar Park, rúmum 100 km norðaustur af Winnipeg. Þaðan lá svo leið hans að Lonely Lake norðaustur af Manitobavatni þar sem hann var með stórbú. Árið 1928 flytur hann til Steep Rock þar sem hann opnaði og rak verslun. Bjó þar síðan.
