Stefán Eiríksson

ID: 12750
Fæðingarár : 1857
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Stefán Ólafur Eiríksson Mynd FLNÍ

Stefán Ólafur Eiríksson fæddist 31. mars, 1857 í N. Múlasýslu.

Maki: Oddný Sigurðardóttir f. 1855 í N. Múlasýslu.

Börn: 1. Guðrún f. 1882 2. Sigurður 3. Kristján 4. Helgi 5. Ármann.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1883 og fór til Nýja Íslands. Nam land í Víðirnesbyggð við Merkilæk (Boundary Creek) vorið 1885 en þar bjó John Taylor fyrstu ár byggðarinnar. Árið 1901 flutti hann í Poplar Park þar sem hann bjó í sex ár. Þaðan lá leiðin norður í Oakview við Manitobavatn. Þar bjuggu þau í tólf ár og fluttu þá vestur til Blaine í Washingtonríki.