Stefán Guðmundsson fæddist í N. Múlasýslu árið 1876. Dáinn í Minnesota árið 1959.
Maki: 2. júní, 1907 Kristín Lilja Snorradóttir f. 9. júní, 1883 í Yellow Medicine sýslu, d. 1. júlí, 1946. Christine Lilja Hognason vestra.
Börn: 1. Stephen Gordon f. 5. apríl, 1910 2. Wilbur Jonathan f. 1. september, 1911 3. Cecil Guðmundur f. 13. júlí, 1913 4. Joan Lilja f. 28. júní, 1915 5. Byron Snorri f. 21. janúar, 1917 6. John Martin f. 15. febrúar, 1925.
Stefán fór vestur árið 1877 með foreldrum sínum, Guðmundi Pétursson og Sesselju Hermannsdóttir. Þau bjuggu í Yellow Medicine sýslu í Minnesota. Kristín var dóttir Snorra Högnasonar og Vilborgar Jónatansdóttur sem bjuggu í Lyon sýslu í Minnesota. Stefán ólst upp í foreldrahúsum í Minnesota og gekk í skóla. Hann varð verkfræðingur.
