Stefán Hrólfsson

ID: 13264
Fæðingarár : 1833
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1908

Stefán Hrólfsson fæddist 4. ágúst, 1833 í N. Múlasýslu. Dáinn 7. júlí, 1908 í Nýja Íslandi.

Ókvæntur og barnlaus.

Stefán var æskuvinur Stefáns Benediktssonar og var hann þeim hjónum samferða vestur til Manitoba árið 1887. Stefán bjó í Fljótsbyggð alla tíð og vann hjá nafna sínum og vini í sömu byggð.