Stefán Jósefsson

ID: 11487
Fæðingarár : 1865
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1925

Stefán Jósefsson fæddist í N. Múlasýslu 22. desember, 1865. Dáinn í Minneota 26. maí, 1925.

Maki: 18. mars, 1892 Petrea Jensdóttir f. 4. september, 1869 í Dalasýslu, d. 6. júní, 1952.

Börn: 1. Jósef Carlin f. 11. júní, 1914.

Stefán flutti vestur til Minnesota árið 1878 með foreldrum sínum, Jósef Jónssyni og Arndísi Jónsdóttur. Petrea fór sama ár vestur með sínum foreldrum, Jens Sigurðssyni og Guðrúnu Pétursdóttur, sem settust að í Lyon sýslu í Minnesota. Stefán og Petrea bjuggu alla tíð í Minneota.