ID: 3772
Fæðingarár : 1867
Fæðingarstaður : Snæfellsnessýsla
Dánarár : 1940
Stefán Ólafur Guðbrandsson fæddist 25. febrúar, 1867 í Snæfellsnessýslu. Dáinn 20. september, 1940 í Winnipeg.
Maki: Sigríður Lárusdóttir f. árið 1872 í Snæfellsnessýslu.
Börn: 1. Guðrún Elín f. 1895 2. Guðbranda f. 1896 3. Hans f. 1898 4. Lárus Fjelsted f. 1900 5. Salbjörg f. 1901 6. Sigvaldi Ingiberg f. 1903 7. Stefán Ólafur, tvíburi f. 1903 8. Sigurður f. í Manitoba.
Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1905 og voru þar í borg fyrsta árið. Fluttu þaðan norður á Rabbit Point við Manitobavatn. Fóru þaðan í Narrows þar sem Stefán nam land.
