Stefanía Jónsdóttir

ID: 11551
Fæðingarár : 1886
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1984

Stefanía Kristín Jónsdóttir fæddist 20. febrúar, 1886 í N. Múlasýslu. Dáin 15. september, 1984 í Kaliforníu.

Maki: 1) Elmer R Farnham f. 1883 í Minnesota, d. fyrir 1930 2) Elmer T. Strand f. 1888 í Nebraska af norskum ættum.

Börn: 1. Norman f. 1908 2. Elmer Earl f. 14. janúar, 1912 3. Marcella f. 1916 4. Douglas f. 28. október, 1919.

Stefanía flutti vestur árið 1889 með foreldrum sínum, Jóni Rafnssyni og Guðrúnu Guðmundsdóttur. Þau settust að í Lyon sýslu.  Árið 1910 bjó Stefanía í Park sýslu í Montana, tíu árum síðar er hún skráð í Valley sýslu í N. Dakota og í Prairie sýslu í Montana árið 1930 með seinni manni sínum.