
Steindór Jakobsson Mynd VÍÆ I
Steindór Jakobsson fæddist í S. Þingeyjarsýslu 29. júlí, 1893.
Maki: 8. júní, 1921 Halldóra Sigrún Lárusdóttir fæddist í Minnesota 26. apríl, 1899. Goodman vestra.
Börn: 1. Steindór Júlíus f. 29. júlí, 1927 2. Lárus Brian f. 4. júlí, 1933.
Steindór fór til Akureyrar barnungur og gekk þar í skóla. Ungur fékk hann vinnu við verslun og reyndist sú reynsla gott veganesti þegar habb, árið 1913, flutti til Winnipeg. Vann til að byrja með við húsamálun á sumrin og fiskveiðar á veturna. Fékk vinnu í matvöruverslun Jóhanns Thorgeirson og eftir tvö ár keypti hann verslunina í félagi við Jakob Kristjánsson. Árið 1926 keypti hann hlut Jakobs og rak einn verslunina til ársins 1955. Hann tók mikinn þátt í felagsstarfi landa sinna í borginni, var í stjórn Þjóðræknisfélagsins og Íslendingadagsins. Lék í ýmsum sjónleikum landa sinna í borginni. Halldóra var dóttir Lárusar Guðmundssonar (Goodman) og Ingibjargar Guðmundsdóttur, sem vestur fluttu árið 1887.
