
Steingrímur og Petrína sitja. Fyrir aftan Steingrím stendur Þorsteinn, þá Jón og loks Pétur Mynd RbQ
Steingrímur Þorsteinsson fæddist 10. desember, 1855 í S. Þingeyjarsýslu. Dáinn 30. desember, 1940 í Saskatchewan.
Maki: Petrína Guðmundsdóttir f. 1875 í S. Þingeyjarsýslu, d. 21. janúar, 1928.
Börn: Jón f. 20. maí, 1882 2. Þorsteinn f. 29. mars, 1887 3. Pétur f. 1889.
Fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1893 og fóru þaðan fljótlega til Kristínar Þorsteinsdóttur og hennar manns í N. Dakota. Hún var systir Steingríms og fór vestur 1878 með manni sínum, Sigurði Krákssyni og syninum Halldóri. Steingrímur svipaðist um í N. Dakota til ársins 1895 en flutti þá í íslensku byggðina í Roseau í Minnesota. Þar nam hann land og reyndi búskap en landið var lélegt og nánast lítið sem ekkert hægt að rækta á því, hvað þá vera með skepnur. Þaðan fluttu þau til baka til Winnipegosis í Manitoba árið 1897 en fluttu þaðan 17. maí, 1905 í Vatnabyggð í Saskatchewan og námu land í Wynyardbyggðinni.
