Steinn S Thompson

ID: 17353
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1893

Dr Steinn S Thompson Mynd VÍÆ I

Steinn Ólafur Sveinsson fæddist í Winnipeg 23. nóvember, 1893. Dr. Thompson vestra. Dáinn í Manitoba 17. ágúst, 1972.

Maki: 3. september, 1923 Þórdís Anna Gunnsteinsdóttir f. 22. desember, 1901.

Börn: 1. Dorothy Ellen f. 29. Janúar, 1925 2. Margaret Emily f. 14. maí, 1926 3. John David f. 7. mars, 1929 4. Robert Kenneth f. 18. janúar, 1933.

Steinn ólst upp hjá foreldrum sínum, Sveini Tómassyni og Sigurlaugu Steinsdóttur í Selkirk. Að loknu miðskólanámi innritaðist hann í Manitobaháskóla í Winnipeg og lauk þaðan B.A. prófi árið 1924. Hann var í kanadíska hernum í fyrri heimstyrjöldinni 1916-1918. Fór þá aftur í langskólanám og lauk læknisprófi árið 1921. Hann var læknir í Riverton frá 1922. Þórdís var dóttir Gunnsteins Eyjólfssonar skálds, sem vestur flutti árið 1876 og Guðfinnu Eiríksdóttur.