ID: 20471
Fæðingarár : 1897
Steinþór Guðmundsson fæddist í Snæfellsnessýslu 14. september, 1897.
Maki: 5. mars, 1930 Þórdís Lovísa Nikulásdóttir f. í Winnipeg 16. september, 1896. Thordis Louvisa Ottenson vestra.
Börn: 1. Steinthor Jon f. 2. ágúst, 1933 2. Vilmar Nikulás f. 5. júlí, 1935.
Steinþór var menntaður klæðskeri og flutti til Vesturheims árið 1928. Hann var ráðinn verkstjóri á verkstæði í San Francisco. Þórdís var dóttir Nikulásar Össurarsonar og Önnu Guðmundsdóttur sem bjuggu í Winnipeg. Hún fór í tónlistarnám og starfaði við hljóðfæraleik alla tíð, fyrst í Winnipeg, síðan Minneapolis. Flutti árið 1929 til Los Angeles. Steinþór og Þórdís bjuggu lengst í Berkeley í Kaliforníu.