Steinunn Frímannsdóttir fæddist í Skagafjarðarsýslu 1883. Dáin árið 1963 í Mouse River byggð.
Maki: 12. desember, 1901 Jón Pétursson fæddist í Marklandi í Nova Scotia 23. janúar, 1878, d. í Mouse River byggð í N. Dakota 16. september, 1921. Jon Peter Hillman vestra.
Börn: 1. Snjólaug (Molly) f. 1. janúar, 1903 2. Helga Ólöf (Olive) f. 26. desember, 1904 3. Pétur f. 2. september, 1906, d. 31. mars, 1972 í N. Dakota 4. Jón (John) Gunnar f. 21. október, 1908, d. 1991 5. Sigurður W. f. 23. nóvember, 1910 6. Kristófer (Christopher) Jóhannes f. 30. janúar, 1913, d. 2005 í Minneapolis 7. Una E. f. 11. mars, 1915, d. 21. apríl, 1993.
Steinunn flutti vestur til N. Dakota árið 1888 með foreldrum sínum, Rósenkar Frímanni Hannessyni og Helgu Jóhannesdóttur og systkinum. Jón flutti vestur frá Marklandi árið 1881 með foreldrum sínum, Pétri Jónssyni og Ólöfu Kjartansdóttur. Þau settust að í Akrabyggð í N. Dakota. Jón og Steinunn fluttu vorið 1902 í Mouse River byggð og bjuggu í þeirri byggð alla tíð.
