Steinunn I Guðmundsdóttir

ID: 20358
Fæðingarár : 1902

Steinunn Ingibjörg Guðmundsdóttir Mynd VÍÆ

Steinunn Ingibjörg Guðmundsdóttir fæddist í Eyjafjarðarsýslu 16. mars, 1902.

Maki: 16. mars, 1929 Ingólfur Nikulás Bjarnason f. 11. september, 1899 í Reyðarfirði í S.Múlasýslu.

Börn: 1. Jónína Guðbjörg f. 24. mars, 1931 2. Kristján Níels Júlíus f. 25. ágúst, 1935 3. Hulda Frances f. 16. janúar, 1939.

Steinunn Ingibjörg var dóttir Guðmundar Þorvaldssonar og Rósu Sigríðar Jónsdóttur, systur Káins. Hún flutti vestur um haf árið 1913 og fór til Jóhannesar Davíðssonar og konu hans Jónínu Daníelsdóttur, sem bjuggu í Leslie í Vatnabyggð. Bjó hjá þeim til fullorðinsára. Ingólfur fór til Vesturheims árið 1921, heim til Íslands árið 1924 og alfarinn vestur 1927. Hann stundaði ýmsa vinnu fyrstu árin, var m.a. fiskimaður norðarlega í óbyggðum Saskatchewan nokkurt skeið. Bjó þau ár í Leslie í Vatnabyggð. Endaði á Gimli þar sem hann var ráðinn umsjónarmaður skólanna.