Svanbjörg Sigurdson

ID: 20706
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1908
Dánarár : 1951

Svanbjörg Sigurdson Mynd VÍÆ V

Georg H Philbin Mynd VíÆ V

Svanbjörg Sigurdson fæddist í Árborg, Manitoba 4. júní, 1908. Dáin í Churchill, Manitoba 16. desember, 1951. Philbin gift kona.

Maki: George Homer Philbin f. í Quebec, Kanada 13. ágúst, 1897, d. í Churchill 6, október, 1963.

Börn: 1. Mary Svanbjörg Diane f. 7. september, 1936 2.Georgiana Signý Theresa f. 13. ágúst, 1939 3. John Gerald Sigurmundur f. 9. júní, 1941.

Svanbjörg var dóttir Sigurmundar Sigurdson og seinni konu hans, Svanbjörgu Sigfúsdóttur, í Geysisbyggð í Nýja Íslandi.  Svanbjörg lauk grunnskólanámi í Árborg, fór síðan til Winnipeg og var við nám í Success Business College þar í borg. Hún varð seinna póstmeistari í Churchill frá 1935 til dauðadags. George settist að í Churchill og varð fyrsti bæjajarstjóri bæjarins.