Svanhildur Jónsdóttir fæddist í Borgarfjarðarsýslu 22. september, 1880.
Maki: Kjartan Magnússon f. í Skagafjarðarsýslu árið 1872, d. í Sandiego 14. apríl, 1930.
Börn: 1. Árni f. 15. júlí, 1904 2. Elaine f. 25. júní, 1905, d. 1. mars, 1994 3. Sigurbjörg Josephine f. 22. janúar, 1908 4. Theodore f. 13. ágúst, 1911 5. Magnús Daníel f. 4. apríl, 1920.
Svanhildur flutti vestur árið 1881 með foreldrum sínum, Jóni Gíslasyni og Þóru Halldórsdóttur. Kjartan flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876 með foreldrum sínum, Magnúsi Guðmundssyni og Guðrúnu Guðmundsdóttur. Þau settust að í N. Dakota og þaðan flutti Kjartan vestur að Kyrrahafi um aldamótin. Þau bjuggu í Seattle árið 1905, sneru til baka til N. Dakota eftir fáein ár, fóru svo þaðan til San Diego. Eftir lát Kjartans flutti Svanhildur til N. Dakota og bjó í Akra byggð.
