Sveinn Jónsson

ID: 7146
Fæðingarár : 1867
Dánarár : 1946

Sveinn Jónsson fæddist í Skagafjarðarsýslu 5. ágúst, 1867. Dáinn 17. september,1946 í Mountain, N. Dakota.

Maki: 15. ágúst, 1896 Kristjana Ragnheiður Kristjánsdóttir f. í Snæfellsnessýslu 25. júní, 1877.

Börn: 1. Jón f. 2. desember, 1897 2. Kristján f. 24. desember, 1898 3. Guðmannía Ágústa Jóhanna f. 7. október, 1900 4. Jónatan f. 26. júlí, 1903 5. Rögnvaldur f. 9. september, 1905 6. Sveinn f. 5. ágúst, 1909 7. Þorgerður f. 3. apríl, 1912 8. Guðmundur Theodore f. 28. desember, 1914 9. Kristín Esther Lilja f. 10. júlí, 1916.

Sveinn var sonur Jóns Jónssonar og Þorgerðar Jónatansdóttur frá Brenniborg í Skagafjarðarsýslu, sem vestur fluttu til Nýja Íslands árið 1876. Kristjana var dóttir Kristjáns Guðmundssonar og Ragnhildar Bjarnadóttur í N. Dakota.  Sveinn flutti frá Nýja Íslandi til Mountain í N. Dakota þar sem hann kynntist Kristjönu. Þau bjuggu þar alla tíð og vann Sveinn þar fyrir stjórnvöld.