Sveinn Þorsteinsson fæddist 14. apríl, 1815 í N. Múlasýslu. Dó úr bólusótt í Mikley haustið 1876.
Maki: 1) Ingibjörg Pálsdóttir d. 1837 2) Guðrún Jónsdóttir f. 1795 3. 11. desember, 1868 3) Sigurbjörg Björnsdóttir f. 22. ágúst, 1827, d. 1895 í Mountain.
Börn: Með Ingibjörgu 1. Páll f. 19. febrúar, 1836, d. sama ár 2. Una f. 31. mars, 1837, d. april, 1837. Engin börn með Guðrúnu. Með Sigurbjörgu: 1. Pálína f. 22. júlí, 1851 2. Katrín Elísabet f. 21. október, 1871. Sveinn átti börn með Önnu Hallsdóttur, ekkju eftir Jón Jónsson á Hallbjarnarstöðum: 1. Þorsteinn f. 19. nóvember, 1860 2. Kristín f. 29. júlí, 1863 3. Stefanía f. 9. janúar, 1865. Sigurbjörg átti 1. Jóhann(es) Vigfússon með Vigfúsi Guðmundssyni 2. Björn Mikaelsson, sonur Mikaels Gellisonar 3. Oddur f. 4. júlí, 1868, faðir óþekktur.
Sveinn og Sigurbjörg fóru vestur með börnum sínum og tengdabörnum árið 1876 og settust að í Mikley sama ár. Þar hét Borðeyri. Sigurbjörg bjó einhver ár með börnum sínum í Fljótsbyggð en flutti þaðan til N. Dakota árið 1880.
