Sveinn Tómasson

ID: 11038
Fæðingarár : 1859
Fæðingarstaður : Borgarfjarðarsýsla
Dánarár : 1941

Sveinn Tómasson í smiðju sinni í Selkirk Mynd L.-H. 2009

Sveinn Tómasson fæddist í Borgarfjarðarsýslu 7. maí, 1859. Dáinn í Manitoba 16. apríl, 1941. Thompson vestra.

Maki: 1) 30. júní, 1891 Sigurlaug Steinsdóttir f. 22. júlí, 1866 í Eyjafjarðarsýslu, d. 4. maí, 1938 í Manitoba. 2) 1939 Guðlaug Eiríksson f. 14. maí, 1909.

Börn: 1. Steinn Ólafur f. 23. nóvember, 1893 2. Ingibjörg d. 1925 3. Jón 4. Tómasína 5. Guðrún 6. Emily 7. Sveinn 8. Franklin.

Sveinn fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1887 og með sama skipi fóru mæðgurnar Ólöf Ingibjörg Steinsdóttir og Sigurlaug. Sveinn og Sigurlaug bjuggu lengstum í Selkirk.