ID: 17350
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1895

Sven H Tergesen Mynd VÍÆ I
Sven Johan Hansson fæddist í Winnipeg 29. september, 1895. Dáinn á Gimli 22. ágúst, 1985. Skrifaði sig Tergesen vestra.
Maki: 21. apríl, 1926 Lára Helga Júlíusdóttir f. 16. janúar, 1905 á Gimli.
Börn: 1. Sven Johan f. 2. október, 1927 2. Terence Pétur Júlíus f. 6. janúar, 1932.
Sven fetaði í fótspor föður síns, Hans Péturs og gerðist kaupmaður á Gimli. Hann tók þátt í samfélagsmálum, sat í bæjarráði í tvö ár og vann vel að safnaðarmálum lúthersku kirkjunnar. Lára Helga var sömuleiðis virk í samfélagsmálum bæjarins.