ID: 9608
Fæðingarár : 1860
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1935
Theodór Jóhannsson fæddist í S. Þingeyjarsýslu árið 1860. Dáinn í Manitoba árið 1935.
Maki: Kristjana Kristjánsdóttir f. 1861 í S. Þingeyjarsýslu. Hún var ekkja eftir Jakob Helgason.
Börn: 1. Anna 2. Guðrún
Theodór fór vestur til Ontario árið 1889 með föður sínum, Jóhanni Helgasyni. Var í Parry Sound einhvern tíma. Þaðan lá leiðin þeirra til Calgary en þangað voru þá komin móðir Theodórs, Halldóra Gunnarsdóttir og bræður hans, þeir Siggeir, Gunnar, Tryggvi og Kristján. Hann vann þar einhvern tíma en tók svo lest til Winnipeg og réðst ráðsmaður til Kristjönu í Argylebyggð. Þau gengu í hjónaband einhverjum árum seinna og bjuggu þar í byggð til ársins 1920 en þá fluttu þau til Glenboro.
