Þóra Jónsdóttir

ID: 10126
Fæðingarár : 1854

Þóra Sigríður Jónsdóttir fæddist árið 1854 í N. Þingeyjarsýslu. Dáin 20. mars, 1931 í Blaine.

Maki: Bjarni Pétursson f. árið 1848 í N. Múlasýslu, d. í Blaine 13. desember, 1930.

Börn: 1. Ólöf Þorgerður f. í Hnausabyggð 27. febrúar, 1878, d. í N. Dakota ca 1894 2. Jón f. í Hnausabyggð 15. apríl, 1880, d. 23. maí, 1880 3. Pétur f. í N. Dakota 4. október, 1882 4. Jón Nýmundur f. 1885 5. Friðjón f. 1889 6. Óli Theodór f. 31. janúar, 1896 í N. Dakota. Þau misstu fjögur börn.

Þau fluttu vestur árið 1876 og settust að í Breiðuvík í Nýja Íslandi. Þau fluttu þaðan árið 1881 og settust að í Parkbyggð í N. Dakota. Árið 1906 seldu þau land sitt og fluttu vestur til Blaine í Washingtonríki.