Þóranna G Ingimundardóttir

ID: 20490
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1912

Þóranna Guðfinna Kristín Ingimundardóttir fæddist í Vatnabyggð í Saskatchewan 28. desember, 1912. Inge vestra.

Maki: 21. nóvember, 1935 Valdimar Sigfússon f. 17. september, 1912 í Wynyard.

Börn: 1. Avery Marteinn f. 24. september, 1936 2. Elaine Linda f. 17. janúar, 1938 3. Sidney Dallas f. 1. mars, 1948 4. Kenneth Edmund f. 6. apríl, 1951.

Valdimar var sonur Þorsteins Sigfússonar og Steinvarar Bjarnadóttur, sem vestur fluttu frá Akureyri 2. júlí, 1876. Foreldrar Þórönnu voru Ingimundur Eiríksson Inge og Steinunn Jónsdóttir, landnemar nærri Foam Lake í Saskatchewan. Valdimar og Þóranna voru bændur í Vatnabeyggð skammt frá Wynyard. Fluttu seinna vestur að Kyrrahafi og bjuggu í Bresku Kólumbíu.