Þórarinn Guttormsson fæddist í N. Múlasýslu árið 1872. Dáinn í Whatcom sýslu í Washington 23. nóvember, 1950.
Maki: Guðlaug Árnadóttir f. í Minnesota.
Börn: 1. Hilde f. 1909 2. Guttormur f. 1911 3. Grímur f. 1914 4. Brynhildur (Brynhilde) f. 1916 5. Sigríður (Sigrid) f. 1919 6. Sigurjón f. 1921 7. Þorbjörg (Thorbjorg) f. 1923.
Þórarinn fór vestur árið 1883 með foreldrum sínum, Guttormi Sigurðssyni og Ólöfu Sölvadóttur, landnema nærri Hallson í N. Dakota. Þórarinn, einhleypur, var búsettur í Roseau sýslu í Minnesota árið 1900 en er skráður í Washington vestur við Kyrrahaf árið 1910. Hann flytur til N. Dakota og er skráður bóndi í Pembina sýslu. Lítið vitað um Guðlaugu en faðir hennar, Árni Jónsson, bjó hjá þeim árið 1930. Þórarinn bjó síðustu árin í Washington.
